close
Fara í innihald

Jon Anderson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jon Anderson (2018)

Jon Anderson (f. John Roy Anderson, 25. október 1944 í Accrington, Englandi) er enskur söngvari og lagahöfundur. Hann var stofnmeðlimur ensku framsæknu rokksveitarinnar Yes þar sem hann var meðlimur frá 1968 , yfir 3 aðskilin tímabil, eða þar til 2004. Anderson á margar sólóplötur að baki og gerði nokkrar samvinnuplötur með gríska tónskáldinu Vangelis. Hann hefur gestað á plötum með öðrum hljómsveitum/tónlistarmönnum eins og King Crimson, Toto og Mike Oldfield. [1]

Jon Anderson spilaði á Íslandi árið 2005 í Háskólabíói [2] og árið 2014 í Hörpu með Sinfóníuhljómsveit, kór og meðlimum Todmobile. [3]

Sólóskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • Olias of Sunhillow (1976)
  • Song of Seven (1980)
  • Animation (1982)
  • 3 Ships (1985)
  • In the City of Angels (1988)
  • Deseo (1994)
  • Change We Must (1994)
  • Angels Embrace (1995)
  • Toltec (1996)
  • Lost Tapes of Opio (1996)
  • The Promise Ring (1997)
  • Earth Mother Earth (1997)
  • The More You Know (1998)
  • Survival & Other Stories (2011)
  • 1000 Hands: Chapter One (2019)
  • True (2024)

Með Vangelis

[breyta | breyta frumkóða]
  • Short Stories (1980)
  • The Friends of Mr. Cairo (1981)
  • Private Collection (1983)
  • Page of Life (1991)

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Jon Anderson - Biography Allmusic.com
  2. Söngvari Yes til landsins Mbl.is. Skoðað 2. maí, 2016.
  3. Færeyjar og Yes Rúv. Skoðað 29. apríl, 2016.