Svelgir
Útlit
| Svelgir | ||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Býsvelgur (Merops apiaster) | ||||||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||
| ||||||||||
| Ættkvíslir | ||||||||||
Svelgir (fræðiheiti: Meropidae) eru ætt meitilfugla sem telur þrjár ættkvíslir og 31 tegund. Flestar tegundirnar er að finna í Afríku og Asíu, en nokkrar finnast í sunnanverðri Evrópu, Ástralíu og Nýju-Gíneu. Einkenni meitilfugla eru litríkt fjaðraskrúð, grannur skrokkur, og oftast langar miðjustélfjaðrir. Allir meitilfuglar hafa langan niðursveigðan gogg og miðlungs- eða langa vængi sem geta verið oddmjóir eða hringaðir. Oftast er fjaðraskrúð kven- og karlfugla svipað.
Svelgir veiða skordýr, eins og býflugur og vespur, á flugi og slá þeim við hart yfirborð til að losa broddinn og eitrið úr þeim. Þeir draga nafn sitt af býsvelgnum (Merops apiaster) sem finnst í Evrópu.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jobling, James A (2010). The Helm Dictionary of Scientific Bird Names. London: Christopher Helm. bls. 251. ISBN 978-1-4081-2501-4.