close
Fara í innihald

Eric Idle

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eric Idle.

Eric Idle (29. mars 1943) er enskur leikari, tónlistarmaður, handrita- og lagahöfundur. Hann var meðlimur enska grínhópsins Monty Python og háðsádeiluhljómsveitarinnar The Rutles. Árið 2004 bjó hann til söngleikinn Spamalot sem byggði á efni Python. Hann hlaut Grammy-verðlaun fyrir tónlistina úr söngleiknum.

Idle samdi þekktasta lag Monty Python, Always Look on the Bright Side of Life. Lagið er vinsælt til spilunar í breskum jarðaförum og var það einnig spilað í jarðarför Graham Chapman, félaga Idle úr Python-hópnum. [1] Idle samdi efni fyrir MP yfirleitt einn síns liðs meðan aðrir meðlimir sömdu saman.[2]

Árið 2025 greindi Idle frá því að hann væri í fjárhagsvandræðum og þyrfti að fara að vinna aftur.[3] Hann fékk briskrabbamein árið 2019 en lifði það af.[4]

Faðir Idle lést þegar hann var tveggja ára í bílslysi en hann hafði skömmu áður barist í seinni heimsstyrjöldinni í konunglega breska flughernum. Idle var vinur tónlistarmanna eins og George Harrison og David Bowie. [5]

  1. Eric Idle: I have to check that my jokes don't offend the younger generation Chortle, sótt 21. janúar 2026
  2. Eric Idle interview: 'Monty Python entered the BBC through a backdoor and refused to leave' The Independent, sótt 21. janúar 2026
  3. Eric Idle: Monty Python star working at 80 for financial reasons BBC, sótt 21. janúar 2026
  4. Eric Idle: I Survived Pancreatic Cancer. It’s a Funny Story Geymt 24 júlí 2025 í Wayback Machine Time, sótt 21. janúar 2026
  5. Eric Idle talks Bowie, Beatles and the chances of a Monty Python reunion NME, sótt 21. janúar 2026