close
Fara í innihald

Jack Grealish

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jack Grealish
Upplýsingar
Fullt nafn Jack Peter Grealish
Fæðingardagur 10. september 1995 (1995-09-10) (30 ára)
Fæðingarstaður    Birmingham, England
Hæð 1,78m
Leikstaða Miðjumaður
Núverandi lið
Núverandi lið Everton
Númer 10
Yngriflokkaferill
2001-2011 Highgate United, Aston Villa
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
2012-2021 Aston Villa 185 (29)
2013-2014 Notts County (lán) 37 (5)
2021- Manchester City 94 (12)
2025- Everton 12 (2)
Landsliðsferill2
2011-2012
2012-2013
2013-2014
2016-2017
2020-
Írland U17
Írland U18
Írland U21
England U21
England
7 (3)
6 (2)
6 (1)
7 (2)
39 (4)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært desember 2025.
2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð
ágúst 2025.

Jack Peter Grealish (fæddur 10. september árið 1995 í Birmingham) er enskur atvinnumaður í fótbolta sem spilar sem kantmaður eða sóknarmiðjumaður fyrir Everton á láni frá Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Hann var í 19 ár hjá Aston Villa alveg frá því hann var 6 ára til 25 ára aldurs.

Grealish lék með yngri landsliðum Írlands en árið 2016 gaf hann það út að hann hafði valið að spila fyrir Enska landsliðið. Grealish skoraði fyrsta mark sitt fyrir landsliðið gegn Andorra haustið 2021.

Félagslið

[breyta | breyta frumkóða]

Aston Villa

[breyta | breyta frumkóða]

Grealish gekk til liðs við Aston Villa 6 ára gamall í akademíuna. Þann 7. maí 2014 kom Grealish inn á völlinn í frumraun sinni fyrir Aston Villa á 88 mínútu í 4-0 tapi gegn Manchester City fyrir Ryan Bertrand. Fyrsta markið kom 13. september 2015 í 3-2 tapi gegn Leicester City með skoti frá 18 metra færi. Grealish var gerður að fyrirliða félagsins í mars 2019. Hann skrifaði undir nýjan 5 ára samning í september 2020 við Aston Villa. Í samningum var klásúla fyrir öll félög í Meistaradeild Evrópu sem gaf þeim leyfi á að kaupa Grealish á 100 milljónir punda án samþykkis Aston Villa. Manchester City nýtti sér það og bauð 100 milljónir í Grealish næsta sumar [1]

Manchester City

[breyta | breyta frumkóða]

Grealish var keyptur til Manchester City 4. ágúst 2021, kaupverðið var 100 milljónir punda sem sló met fyrir kaup á breskum leikmanni í Ensku úrvalsdeildinni. Grealish skrifaði undir 6 ára samning við Manchester City og tók númerið 10 sem Sergio Agüero var með áður. [2] Eftir meiðsli tímabilið 2023-2024 og að hafa misst byrjunarsæti sitt í liði City var ljóst að Grealish var ekki inni í myndinni hjá Pep Guardiola þjálfara sumarið 2025. Hann fór því á láni til Everton. [3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Jack Grealish“, Wikipedia (enska), 21 júní 2021, sótt 22 júní 2021
  2. Jack Grealish: Man City sign England midfielder from Aston Villa for £100m BBC, sótt 5.8 2021
  3. Everton agree season-long loan deal for Grealish BBC, sótt 11. ágúst 2025