1530
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1530 (MDXXX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 24. janúar - Séra Þórður Einarsson dæmdur frá prestskap í Hítardal í svonefndum Hítardalsdómi. Hann var sakaður um barneignir í frillulífi, skemmd á Skálholtskirkju, slagsmál við annan prest og óhlýðni við Ögmund Pálsson biskup.
- Fyrsta prentsmiðjan líklega flutt til Íslands með prentaranum Jóni Matthíassyni hinum sænska.
- Sigvarður Halldórsson varð ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
- Þorvarður Helgason príor í Skriðuklaustri lét af embætti.
- Jón Markússon varð príor í Skriðuklaustri.
- Mannlausa báta rak að ströndum Íslands og voru þeir smurðir selalýsi og taldir frá Grænlandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þórður Einarsson prestur í Hítardal. Dó erlendis en hann hafði farið á fund erkibiskups að reyna að fá dómnum yfir sér hrundið.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Spænski landvinningamaðurinn Hernán Cortés leiddi innreið inn í Mexíkó.
- 24. febrúar - Klemens VII páfi krýndi Karl 5. keisara í Bologna og var það í síðasta sinn sem keisari var krýndur af páfanum.
- 23. mars - Mölturiddarar urðu til þegar Klemens VIII páfi gaf Jóhannesarriddurum eyna Möltu.
- 25. júní - Karli 5. keisara afhent Ágsborgarjátningin.
- 25. júlí - Karl 5. keisari færði borgina Trípólí í norður-Afríku til Mölturiddaranna.
- 3. ágúst - Cognac-bandalagsstríðið: Flórens féll fyrir spænskum her og Mediciættin komst aftur til valda.
- Collège de France, frönsk menntastofnun var stofnuð.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 25. ágúst - Ívan 4. (Ívan grimmi) Rússakeisari (d. 1584).
- Jean Bodin, franskur fræðimaður og þingmaður ( d. 1596).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 29. nóvember - Thomas Wolsey, enskur kardínáli og stjórnmálamaður (f. 1473).
- 1. desember - Margrét af Austurríki, austurrísk hertoga- og keisaradóttir, (f. 1480)
- 26. desember - Babúr, herstjóri frá Mið-Asíu og stofnandi Mógúlveldisins.(f. 1483).
- Søren Andersen Norby, danskur flotaforingi og um tíma hirðstjóri á Íslandi.