Reinfang
Útlit
| Reinfang | ||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
| Tvínefni | ||||||||||||||
| Tanacetum vulgare L. |
Reinfang [1] (fræðiheiti: Tanacetum vulgare) er ilmjurt af körfublómaætt. Reinfang er harðgerð jurt og lifir jafnvel áratugum saman í afræktum görðum eyðibýla og er jafnan hin gróskulegasta. Reinfang hefur einnig verið nefnt regnfang, rænfang, reinfáni, daggarsmali, leiðabuski og ormagras á íslensku. Oftast er það afbrigðið með hrokknum blöðum sem er í íslenskum görðum. Reinfang hefur verið ræktað í Evrópu síðan á tímum Karlamagnúsar,[2] og taldi hann reinfangið eina af 90 tegundum sem klaustrin ættu að rækta.

Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jurtir Karlamagnúsar - munkareinfang Bændablaðið, Hafsteinn Hafliðason, síða 48
- ↑ Gassmann, A (7 janúar 2022). „Tanacetum vulgare (tansy)“. CABI Compendium (enska). CABI Compendium: 13366. doi:10.1079/cabicompendium.13366. ISSN 2958-3969.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Reinfang.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Tanacetum vulgare.