close
Fara í innihald

Yukio Hatoyama

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Yukio Hatoyama
鳩山 友紀夫
Yukio Hatoyama árið 2007.
Forsætisráðherra Japans
Í embætti
16. september 2009  8. júní 2010
ÞjóðhöfðingiAkihito
ForveriTarō Asō
EftirmaðurNaoto Kan
Persónulegar upplýsingar
Fæddur11. febrúar 1947 (1947-02-11) (79 ára)
Bunkyō, Tókýó, Japan
StjórnmálaflokkurLýðræðisflokkurinn (1998–2012)
MakiMiyuki Hatoyama (g. 1975)
ForeldrarIichirō Hatoyama (faðir)
Yasuko Hatoyama (móðir)
HáskóliHáskólinn í Tókýó
Stanford-háskóli
StarfStjórnmálamaður
Undirskrift

Yukio Hatoyama (japanska: 鳩山 友紀夫; f. 11. febrúar 1947) er japanskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Japans frá 2009 til 2010.

Hatoyama er af ríkri og voldugri stjórnmálaætt. Hann er barnabarn Ichirō Hatoyama, var forsætisráðherra Japans á sjötta áratugnum og hinn afi hans stofnaði Bridgestone, stærsta dekkjaframleiðslufyrirtæki heims. Faðir Hatoyama var utanríkisráðherra Japans á áttunda áratugnum hans og bróðir hans var ráðherra í ríkisstjórn Tarō Asō.[1] Eiginkona hans, Miyuki Hatoyama, er leik­kona, mat­reiðslu­bóka­höf­und­ur, fata­hönnuður og sjón­varps­stjarna.[2]

Hatoyama var leiðtogi Lýðræðisflokksins, sem vann stórsigur gegn ríkisstjórn Frjálslynda lýðræðisflokksins í þingkosningum Japans árið 2009. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hafði þá farið nánast óslitið með völd í Japan í hálfa öld. Í kosningabaráttunni hafði Lýðræðisflokkurinn boðað öflugra velferðarkerfi og breytta utanríkisstefnu með nánara sambandi við Asíu og auknu sjálfstæði gagnvart Bandaríkjunum.[1] Japanska þingið staðfesti kjör Hatoyama til forsætisráðherra þann 16. september 2009.[3]

Í kosningabaráttunni hafði Hatoyama lofað að beita sér fyrir því að herstöð Bandaríkjanna á Okinawa yrði lokað. Í maí 2010 tilkynnti Hatoyama hins vegar að herstöðin fengi að vera þar áfram og bað kjósendur afsökunar á því að hafa gengið á bak orða sinna.[4] Hatoyama sagði síðan af sér þann 3. júní 2010 eftir aðeins átta mánuði í embætti. Hann sagði ástæðuna vera bæði fjármögnunarhneyksli og ákvörðunina um að leyfa bandaríska hernum að halda herstöðinni og sagðist hafa brugðist trausti þjóðarinnar.[5]

Hatoyama heimsótti Krímskaga árið 2015 og fullyrti að innlimun Rússlands á Krímskaga hefði verið lögleg. Hann spáði því jafnframt ranglega að Úkraína og Atlantshafsbandalagið myndi gera kjarnorkuárás á Rússland árið 2023.[6][7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 Jóhanna María Vilhelmsdóttir (31. ágúst 2009). „Japanskur almenningur hefur krafist breytinga“. Morgunblaðið. bls. 14.
  2. „Forsætisráðherra sýnir föt“. mbl.is. 5. október 2009. Sótt 22. ágúst 2025.
  3. Atli Steinn Guðmundsson (16. september 2009). „Hatoyama tekur við völdum“. Vísir. Sótt 22. ágúst 2025.
  4. „Baðst afsökunar á herstöð frá BNA“. RÚV. 23. maí 2010. Sótt 22. ágúst 2025.
  5. „Hatoyama segir af sér embætti“. Vísir. 3. júní 2010. Sótt 22. ágúst 2025.
  6. „Ex-prime minister Hatoyama defends referendum in Crimea as constitutional“. The Japan Times (enska). 12. mars 2015. Sótt 16. desember 2023.
  7. 鳩山由紀夫氏、誤情報拡散を謝罪 ウクライナ巡り「核戦争で人類が滅びてしまいかねない」とツイートも「撤回する」


Fyrirrennari:
Tarō Asō
Forsætisráðherra Japans
(16. september 2009 – 8. júní 2010)
Eftirmaður:
Naoto Kan


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum og Japan er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.