Íþróttahátið Breiðabliks fór fram í gærkvöldi miðvikudaginn 7. janúar. Þar heiðrar Breiðablik íþróttafólkið sitt fyrir árangur ársins 2025. Sundmaður Breiðabliks árið 2025 er Snævar Örn Kristmannsson og sundkona Breiðabliks árið 2025 er Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir.
Sundmaður Breiðabliks
Snævar Örn keppir í flokki einhverfa og er einn fremsti sundmaður í hans flokki í heiminum í flugsundi.
Helsti árangur Snævars er heimsmet sem hann sett í 50 metra flugsundi á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug, á sama móti sett hann einnig 3 evrópumet í 100 flug, 200 flug og 100 fjórsundi
Hann fór einnig á Virtus leikana í Tælandi í ágúst og nældi sér í þrjú silfurverðlaun. Þar keppa sterkustu sundmenn í hans flokki í heiminum. Hann náði þessum árangir í öllum flugsundgreinunum 50, 100 og 200 metrum. Á Íslandsmeistaramótunum á árinu hefur hann náð í 2 silfur og eitt bronsverðlaun í opnum flokki.
Í heildina hefur náð að slá 30 Íslandsmet yfir árið. Það verður spennandi að sjá hvað Snævar Örn mun taka sér fyrir hendur á næsta ári.
Sundkona Breiðabliks
Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir er mjög framarlega á sýnum aldri og hefur náð framúrskarandi árangri á árinu sem er að líða.
Helsta afrek hennar á árinu eru aldursflokkameistari í 200m skriðsundi og hlaut annað sæti í 100m skriðsundi á sama móti AMÍ (aldursflokkameistaramót Íslands). Náði einnig lámarki inn í Framtíðarhóps SSÍ á árinu og var mjög nálægt lámörkum inn á norðurlandameistaramótið.
Guðbjörg Helga hefur verið fastur liðsmaður í framtíðarhópi SSÍ. Á árinu fór hún í nokkrar ferðir með þeim, þar á meðal Taastrup open og landakeppni hjá Íslandi og Færeyjum.
Guðbjörg Helga leggur sig 100% fram á æfingum og verður áhugavert að fylgjast með henni í nánari framtíð.
Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.