1554
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |


Árið 1554 (MDLIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 12. mars - Klausturhald formlega aflagt.
- Maí-júní - Heklugos í Vondubjöllum, suðvestur af fjallinu.
- Oddur Gottskálksson varð lögmaður norðan og vestan.
- Knud Stensen varð hirðstjóri.
- Séra Oddur Þorsteinsson í Eyjafirði var dæmdur útlægur úr Norðlendingafjórðungi alla sína ævi fyrir að hafa náð barnungri mágkonu sinni á sitt vald með göldrum og nauðgað henni. Hann átti líka að missa hægri höndina (en Páll Stígsson höfuðsmaður náðaði hann þó) og einnig skyldi skera af honum bæði eyrun ef hann gyldi ekki stúlkunni stórfé í skaðabætur.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 25. janúar - Borgin São Paulo var stofnuð í Brasilíu.
- 12. febrúar - Lafði Jane Grey og eiginmaður hennar, Guildford Dudley lávarður, voru tekin af lífi í London. Hún hafði gert tilkall til krúnu Englands árið áður og verið drottning í níu daga.
- 17. mars - Elísabet prinsessa var fangelsuð í Tower of London.
- 12. apríl - María af Guise varð ríkisstjóri Skotlands.
- 11. júní - Ítalíustríðin: Ítalir hrundu franskri árás á Siena.
- 23. júlí - Filippus 2. varð konungur Napólí og Sikileyjar.
- 23. - 25. júlí - María 1. Englandsdrottning giftist Filippusi konungi af Napólí og Sikiley, einkasyni Karls 5. keisara.
- 13. september - Mohammed ash-Sheikh, réðst á borgina Fez í Marokkó og varð soldán landsins. Ali Abu Hassun, fyrri leiðtogi, flúði land.
- Fyrsta kaffihúsið var opnað í Istanbúl í Tyrklandi.
- Portúgalir fengu leyfi til að versla í héraðinu Guangdong í Kína.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 9. janúar - Gregoríus 15. páfi (d. 1623).
- 20. janúar - Sebastían 1. Portúgalskonungur (d. 1578).
- 5. júlí - Elísabet af Austurríki, kona Karls 9. Frakkakonungs (d. 1592).
- 19. desember - Filippus Vilhjálmur, Óraníufursti (d. 1618).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - Pedro de Valdivia, spænskur landvinningamaður (f. um 1500).
- 12. febrúar - Lafði Jane Grey, Englandsdrottning í níu daga, hálshöggvin (f. um 1537).
- 21. febrúar - Hieronymus Bock, þýskur grasafræðingur (f. 1498).
- 22. september - Francisco Vásquez de Coronado, spænskur landvinningamaður (f. um 1510).
- Leó Afríkanus, súdanskur sagnfræðingur (f. 1495).