close
Fara í innihald

Ben Kingsley

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sir
Ben Kingsley
Ben Kingsley árið 2014.
Ben Kingsley árið 2014.
Upplýsingar
FæddurKrishna Pandit Bhanji
31. desember 1943 (1943-12-31) (82 ára)
Snainton, Yorkshire, Englandi
ÞjóðerniEnskur
Ár virkur1967–
MakiAngela Morant (g. 1966; sk. 1976)
Alison Sutcliffe (g. 1978; sk. 1992)
​Alexandra Christmann (g. 2003; sk. 2005)
Daniela Lavender (g. 2007)
Börn4
Undirskrift
Helstu hlutverk
Óskarsverðlaun
Besti leikari í aðalhlutverki fyrir Gandhi (1983)

Sir Ben Kingsley (fæddur undir nafninu Krishna Pandit Bhanji 31. desember 1943) er enskur leikari. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna á sjö áratuga löngum leikferli sínum, meðal annars Óskarsverðlaun, BAFTA-verðlaun, Grammy-verðlaun og tvenn Golden Globe-verðlaun, auk þess sem hann hefur verið tilnefndur til fernra Primetime Emmy-verðlauna og tvennra Laurence Olivier-verðlauna. Kingsley hlaut riddaranafnbót árið 2002 fyrir framlög til breska kvikmyndaiðnaðarins.[1] Hann hlaut stjörnu á frægðargötu Hollywood árið 2010[2] og vann Britanníuverðlaunin árið 2014.[3]

Móðir Kingsley var ensk en faðir hans Indverji frá Gújarat af ættum frá Jamnagar. Kingsley hóf leiklistarferil sinn í leikhúsi. Hann gekk til liðs við Konunglega Shakespeare-félagið árið 1967 og lék aðallega á sviði næstu 15 árin. Hann lék meðal annars aðalhlutverkin í uppsetningum á Hvað sem þið viljið (sem var frumraun hans á West End fyrir félagið í Aldwych-leikhúsinu árið 1967), Ys og þys út af engu, Ríkharður 3. , Ofviðrið, Draumur á Jónsmessunótt, Hamlet og Vindsór-konurnar kátu. Kingsley er einnig þekktur fyrir sjónvarpshlutverk og hefur fjórum sinnum verið tilnefndur til Primetime Emmy-verðlauna, fyrir hlutverk sín í Morðingjar meðal vor (1989), Jósef (1995), Anna Frank (2001) og Frú Harris (2006).

Á hvíta tjaldinu er Kingsley þekktastur fyrir að leika Mahatma Gandhi í kvikmyndinni Gandhi (1982) í leikstjórn Richards Attenborough, sem skilaði honum Óskarsverðlaunum sem besti leikarinn og BAFTA-verðlaunum sem besti aðalleikarinn. Kingsley var tilnefndur til BAFTA-verðlauna sem besti aukaleikarinn fyrir túlkun sína á hlutverki Itzhak Stern í kvikmyndinni Listi Schindlers eftir Steven Spielberg. Hann hefur einnig verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndunum Bugsy (1990), Sexy Beast (2000) og Hús byggt á sandi (2003). Meðal annarra þekktra mynda með Kingsley má nefna Maurice (1987), Laumuspil (1992), Leitin að Bobby Fischer (1993), Dauðinn og stúlkan (1994), Þrettándakvöld (1996), Tuck að eilífu (2002), Slembi-Slevin (2006), Elegy (2008), Fangaeyjan (2010) og Hugo (2011).

Kingsley hefur leikið persónuna Trevor Slattery í Marvel-kvikmyndaheiminum í rúman áratug, í kvikmyndunum Iron Man 3 (2013) og Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings (2021), stuttmyndinni All Hail the King (2014) og þáttaröðinni Wonder Man á Disney+ (frá 2026). Hann hefur jafnframt leikið í stórmyndunum Prinsinn af Persíu: Sandur tímans (2010) og Ender's Game (2013). Kingsley hefur jafnframt ljáð persónum rödd sína í kvikmyndunum Kassatröllin (2014) og Skógarlíf (2016).

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Sir Ben: Knighthood beats Oscar“. BBC News. Sótt 13. mars 2013.
  2. „Sir Ben Kingsley gets star on Hollywood Walk of Fame“. BBC News. 28 maí 2010. Sótt 20 júní 2010.
  3. „The Britannia Awards: Kathryn Bigelow and Sir Ben Kingsley“. Bafta. 30 júlí 2013. Afrit af upprunalegu geymt þann 7 nóvember 2014. Sótt 26 júní 2015.
  Þetta æviágrip sem tengist leikurum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.