close
Fara í innihald

Pietro Badoglio

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Pietro Badoglio
Forsætisráðherra Ítalíu
Í embætti
26. febrúar 1922  29. október 1922
ÞjóðhöfðingiViktor Emmanúel 3.
ForveriBenito Mussolini
EftirmaðurIvanoe Bonomi
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. september 1871(1871-09-28)
Grazzano Monferrato, Ítalíu
Látinn1. nóvember 1956 (85 ára) Grazzano Badoglio, Ítalíu
ÞjóðerniÍtalskur
StjórnmálaflokkurÓflokksbundinn
MakiSofia Valania (g. 1904; d. 1942)

Pietro Badoglio, 1. hertogi af Addis Abeba (28. september 18711. nóvember 1956) var ítalskur hershöfðingi og stjórnmálamaður. Hann hóf feril sinn í ítalska hernum og barðist í Erítreu og Líbýu. Hann varð herforingi eftir að hafa tekið Monte Sabotino í maí 1916. Eftir stríð var hann útnefndur öldungadeildarþingmaður en hélt áfram störfum fyrir herinn. Í fyrstu var hann á móti Benito Mussolini og 1922 var honum ýtt til hliðar og hann gerður að sendiherra í Brasilíu. Afstaða hans breyttist þó fljótt og 1924 varð hann yfirmaður í hernum og landstjóri í Líbýu 1929 til 1933. 1936 tók hann við af Emilio de Bono sem yfirmaður innrásarinnar í Eþíópíu og heimilaði meðal annars notkun eiturgass.[1] Hann náði Addis Abeba á sitt vald 5. maí og batt þannig enda á átökin. Fyrir þetta var Badoglio gerður að varakonungi í Eþíópíu og fékk titilinn „hertogi af Addis Abeba“. [2]

1939 gerðist Ítalía aðili að Stálbandalaginu. Badoglio var meðal þeirra sem voru andsnúnir samkomulaginu og höfðu áhyggjur af stöðu Ítalíu ef til styrjaldar kæmi. Eftir hrakfarir hersins í Grikklandi 1940 sagði hann af sér.

Þegar bandamenn réðust inn á Sikiley kom miðstjórn ítalska fasistaflokksins saman og framkvæmdi stjórnarbyltingu. Viktor Emmanúel 3. setti þá Mussolini af og fékk Badoglio umboð til stjórnarmyndunar. Lýst var yfir að herlög væru í gildi, Mussolini tekinn höndum og viðræður teknar upp við fulltrúa bandamanna. Þýski herinn brást þá við, réðist inn í Ítalíu og frelsaði Mussolini en stjórnin hörfaði til Pescara og Brindisi. 3. september skrifaði Badoglio undir vopnahlé gagnvart bandamönnum og 13. október lýsti hann formlega yfir stríði á hendur Þjóðverjum sem þá höfðu náð Róm á sitt vald. 10. júlí 1944 sagði hann af sér embætti og konungur veitti Ivanoe Bonomi, fulltrúa andstæðinga fasista, umboð til stjórnarmyndunar. Badoglio dró sig þá í hlé og bjó í fæðingarbæ sínum, Grazzano, til dauðadags.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Pietro Badoglio“. Rökkur. 1. maí 1935. bls. 70–72.
  2. „Nýi forsætisráðherrann“. Alþýðublaðið. 27. júlí 1943. bls. 3.


Fyrirrennari:
Benito Mussolini
Forsætisráðherra Ítalíu
(1943 – 1944)
Eftirmaður:
Ivanoe Bonomi