close
Fara í innihald

Alexander Mackenzie

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alexander Mackenzie
Mackenzie árið 1878.
Forsætisráðherra Kanada
Í embætti
7. nóvember 1873  8. október 1878
ÞjóðhöfðingiViktoría
LandstjóriJarlinn af Dufferin
ForveriJohn A. Macdonald
EftirmaðurJohn A. Macdonald
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. janúar 1822(1822-01-28)
Logierait, Skotlandi
Látinn17. apríl 1892 (70 ára) Torontó, Ontario, Kanada
StjórnmálaflokkurFrjálslyndi flokkurinn
MakiHelen Neil (g. 1845; sk. 1852)
Jane Sym (g. 1853)[1]
Börn3
Undirskrift

Alexander Mackenzie (28. janúar 1822 – 17. apríl 1892) var kanadískur múrari og stjórnmálamaður sem var annar forsætisráðherra Kanada frá 1873 til 1878.

Mackenzie fæddist í Logierait í Perthshire í Skotlandi. Hann hætti skólagöngu þegar hann var 13 ára gamall eftir að faðir hans lést til að hjálpa móður sinni að ná endum saman og hlaut þjálfun í múraraiðn. Mackenzie flutti til Kanadafylkis í Ameríku þegar hann var 19 ára og settist að þar sem síðar varð til fylkið Ontario. Hann efnaðist ágætlega sem steinmúrari og varð ritstjóri fréttablaðsins Lambton Shield, sem mælti með umbótum í stjórnkerfi Kanada.[2] Mackenzie var kjörinn á löggjafarþing Kanadafylkis árið 1862 sem stuðningsmaður George Brown.

Árið 1867 var Mackenzie kjörinn á neðri deild hins nýstofnaða þings Kanada fyrir Frjálslynda flokkinn. Hann varð leiðtogi flokksins (og þar með stjórnarandstöðunnar) um miðbik ársins 1873 og tók nokkrum mánuðum síðar við af John A. Macdonald sem forsætisráðherra Kanada eftir að Macdonald sagði af sér í kjölfar hneykslismála. Mackenzie og Frjálslyndi flokkurinn unnu hreinan meirihluta þingsæta í þingkosningum Kanada árið 1874. Mackenzie varð vinsæll meðal almennings vegna fábrotins uppruna síns og stuðnings síns við lýðræðislega stjórnarhætti.

Sem forsætisráðherra hélt Mackenzie áfram verkefnum sem forveri hans hafði hafið til að þróa ríkisstofnanir Kanada. Ríkisstjórn hans stofnaði Hæstarétt Kanada og Hinn konunglega herskóla Kanada og stofnaði Keewatin-umdæmið til að auðvelda stjórnsýslu á nýjum landsvæðum í vesturhluta Kanada. Stjórninni miðaði hins vegar lítið áfram við byggingu fyrirhugaðrar járnbrautar yfir landið og hún átti erfitt með að bregðast við fjármálakreppunni 1873. Stjórn Mackenzie tapaði með afgerandi hætti í þingkosningum Kanada árið 1878 og Macdonald varð forsætisráðherra á ný. Mackenzie var áfram leiðtogi Frjálslynda flokksins næstu tvö árin og sat áfram á þingi þar til hann lést úr heilablóðfalli árið 1892.

  • Forster, Ben (1990). „Mackenzie, Alexander“. Í Halpenny, Francess G. (ritstjóri). Dictionary of Canadian Biography. 12. bindi. University of Toronto Press.
  • Harris, Charles Alexander (1893). „Mackenzie, Alexander (1822-1892)“ . Í Lee, Sidney (ritstjóri). Dictionary of National Biography (enska). 35. bindi. London: Smith, Elder & Co. bls. 135–136.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Harris (1893), bls. 136.
  2. Forster (1990).


Fyrirrennari:
John A. Macdonald
Forsætisráðherra Kanada
(7. nóvember 1873 – 8. október 1878)
Eftirmaður:
John A. Macdonald


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.